Fréttatilkynning: Kattakverfið - myndlistarsýning. Myndlistarmennirnir Arna G Valsdóttir og Aðalsteinn Þórsson sýna í Deiglunni, Listagilinu á Akureyri. 11. - 19. apríl næstkomandi. Sýningun er endurlit á vinnustofudvöl þeirra á vegum The Chinese European Art Center í borginni Xiamen í Kína árið 2025 og um leið samþætting við þeirra sér íslenska hversdagsleika og amstur. Á þennan hátt er um að ræða framhald á verkefni listafólksins og sýningu þeirra í galleríi CEAC í Xiamen fyrir ári síðan. Þar unnu þau hvort á sinn hátt innsetningu út frá hversdeginum. Aðalsteinnn með söfnun afganga lífs síns, umbúða og öðru sem ekki eru not fyrir lengur. Þess sem við látum hverfa úr tilverunni en hættir ekki að vera til. Arna með því að safna hverfulum augnablikum í myndbandstökuvél sína sem hún síðan endurnýtir í hreyfimyndir. Á þennan hátt flytur hún liðin augnablik úr einu heimshorni yfir í annað. Á vissan hátt má segja að bæði Aðalsteinn og Arna vinni með afganga eða það sem gengur af í lífinu. Bæði luku Arna og Aðalsteinn framhaldsnámi í myndlist frá hollenskum listaháskólum, Arna seint á níunda áratug síðustu aldar og Aðalsteinn á þeim tíunda. Þau eiga fjölbrettan listferil að baki sem spannar áratugi. Opnun: 11. apríl frá 15 - 18. Öll eru velkomin og ókeypis inn.
Press release: The Cat-district - art exhibition. Artists Arna G Valsdóttir and Aðalsteinn Þórsson are exhibiting at Deiglan gallery at the Listagilin in Akureyri. April 11th - 19th. The exhibition is a retrospective of their studio stay at The Chinese European Art Center in the city of Xiamen, China in 2025 and at the same time an integration with their own Icelandic everyday life and routine. In this way, it is a continuation of the artists' project and their exhibition at the CEAC gallery in Xiamen a year ago. There, they each created an installation based on everyday life in their own way. Aðalsteinn with the collection of the remains of his life, packaging and other things that are no longer useful. That which we let disappear from existence but does not cease to exist. Arna with the collection of fleeting moments in her video camera which she then reuses in moving pictures. In this way, she transfers past moments from one corner of the world to another. In a way, it can be said that both Aðalsteinn and Arna work with leftovers or what is left over in life. Both Arna and Aðalsteinn completed postgraduate studies in fine arts from Dutch art universities, Arna in the late 1980s and Aðalsteinn in the 1990s. They have a diverse artistic career spanning decades. Opening: April 11th from 3 - 6 pm All are welcome and admission is free.