Hér undir texti sem fylgir verkinu Liðssafnaður/málamiðlun sem er til sýnis á opnunartíma fræðasetursins í sumar. Allar myndirnar eru af verki mínu nema þær tvær síðustu sem eru af innsetningu Örnu G Valsdóttur sem er inni í setrinu og stendur einnig út sumarið. „Liðssafnaður/málamiðlun Hvernig skipum við okkur í flokka. Hvernig umgöngumst við ágreining? Þegar ég var barn drógst ég að vopnum og verjum. Leikir voru gjarnan ofbeldisfullir. Þannig var veröldin og það var fyrir mér eðlilegt ástand og ég var ekki einn um það. Sögur okkar íslendinga fjalla mikið um deilur, ofbeldi er ríkur þáttur í þessum sögum ekki síst íslendingasögunum og sturlungu, þar sem mannvíg og dráp eru hversdagslegur kostur. Eðlilega skiptum við okkur í flokka og það er oft hart deilt. Jafnvel svo að vissir hópar eru farnir að kalla eftir líkamlegu ofbeldi gagnvart þeim sem eru séðir sem andstæðingar. Í alþjóða umhverfinu eru stríð háð af ríkjum sem hafa til skamms tíma talið sig vera lýðræðisríki með mannréttindi tryggð í stjórnarskrám og þykir ekki tiltöku mál af forystu viðkomandi landa. Hér í nágrenninu eru tæki og tól uppi á fjalli til að fylgjast með mögulegum óvini. Okkur er sagt að við öllu sé að búast. Forystu ærin er fallin til forystu og þegar vel gengur er hún ómetanleg en stundum þegar forystunnar er ekki æskt getur hún verið vandræða gripur til mikilla leiðinda.“ https://www.forystusetur.is/ er vefsíða fræðasetursins.
Photos accompanying the entry are from the work Dispute/Mediation which is on display during the opening hours of The Study Center for the Leader sheap this summer. All the images are of my work except the last two which show the installation by Arna G Valsdóttir inside the Center and will also be on display until the end of the summer. Dispute/Mediation How do we organize ourselves into groups? How do we deal with disagreements?